Aukið áburðarúrval hjá Líflandi

LÍF áburður frá Líflandi
LÍF áburður frá Líflandi

Lífland hóf innreið sína á áburðarmarkaðinn og markaðssetti áburð í fyrsta sinn snemma á liðnu ári. Voru þá fluttar inn átta vörutegundir. Almenn ánægja var með áburðinn á liðnu vori og reyndist hann mjög ryklítill og dreifigæðin voru með ágætum. Nú hefur úrvalið verið aukið og er boðið upp á tólf vörutegundir áburðar í ár. Áburðurinn er framleiddur hjá Grassland Agro á Írlandi og sérsniðinn að þörfum íslenska markaðarins. Hann er að mestu fjölkorna að frátöldum LÍF 27 og LÍF 27-6-6 sem eru einkorna tegundir.

Það er okkur hjá Líflandi ánægja að tilkynna að styrking krónunnar og lækkun áburðarefna á heimsmarkaði veldur því að ný verðskrá er allt að 26% lægri en sú síðasta.

Bændur eru hvattir til þess að tryggja sér vöruna tímanlega.

Kynntu þér úrvalið og verðlistann hér.


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana