Leovet snyrtivörurnar vinna verðlaun Cavallo tímaritsins

Leovet hestaumhirðuvörurnar voru að vinna verðlaun í neytendakönnun Cavallo tímaritsins sem að er mest selda hestatímarit í Þýskalandi. 

Ritstjórn Cavallo er mjög dugleg að gera neytendakannanir og mikið til þess unnið að vera þar í efstu sætum þar sem að lesendur tímaritsins velja vinsælustu/bestu vöruna. 

Eins og sjá má þá ber Leovet höfuð og herðar yfir samkeppnisaðilana og er þó samkeppnin á hestaumhirðumarkaðnum í Þýskalandi mjög hörð og mörg góð merki að berjast um hituna.

Lífland hefur selt Leovet vörurnar í áraraðir og Íslendingar þekkja merkið af miklu úrvali og góðum gæðum. Sumar Leovet vörur er einnig hægt að nota fyrir okkur mannfólkið svosem Cold Pack kælikremið á stífa og þreytta vöðva og hefur það td gefið góða raun í baráttunni við vöðvabólgu. Leovet í Þýskalandi selur Cold Pack kælikremið jöfnum höndum til nota fyrir hross og menn. Nuddarar og sjúkraþjálfarar lofa vöruna í hástert og nota hana í sinni vinnu.

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana