Haldin verður röð fyrirlestra ásamt því að knöpum verður leiðbeint af þekktum og reyndum þjálfurum og dómurum í vetur. Sú dagskrá verður kynnt nánar á fundinum og mun landsliðsnefndin og liðsstjórinn Hafliði Halldórsson fara yfir dagskrána lið fyrir lið og skýra einstaka liði hennar ásamt því að svara spurningum fundargesta.
Þjálfun knapa verður skipt í fullorðinshóp og ungmennahóp en fræðslufundir verða sameiginlegir báðum hópum.
Fyrirhugað þjálfunarnámskeið með Julio Borba og Rúnu Einarsdóttir er laugardaginn 19. janúar n.k. og mun liðsstjóri gefa nánari upplýsingar um það námskeið á fundinum.
Dagsetning og tími: miðvikudagur 16. janúar
Tími: kl. 17:00
Staður: ÍSÍ, Engjavegi 6, Rvk. Salur E, 3. hæð.
Landsliðsnefnd LH hvetur áhugasama til að mæta og kynna sér metnaðarfullt starf nefndarinnar og liðsstjórans á HM-árinu 2013.
Sjáumst!
Landsliðsnefnd LH & Hafliði Halldórsson
Tekið af vef lhhestar.is