Kynning á liðum í Meistaradeild Líflands og æskunnar

Meistaradeild Líflands og æskunnar 2018
Meistaradeild Líflands og æskunnar 2018

Kynning á þeim liðum sem taka þátt í Meistaradeild Líflands og æskunnar verður í Líflandi Lynghálsi miðvikudaginn 13. desember á milli kl 17 og 19. Léttar veitingar verða í boði ásamt afsláttum á völdum vörum. Meistaradeild Líflands og æskunnar verður haldin í annað sinn núna í vetur.


Deildin tókst afar vel í fyrra og vakti mikla lukku bæði meðal keppenda og aðstandenda og núna í vetur ætlum við að gera enn betur. Liðin sem taka þátt eru 12 með 4 knöpum hvert þannig að samtals 48 flottir knapar eru skráðir til leiks. 

Lágmarksaldur knapa er 13 ára á keppnisárinu og hámarksaldur 18 ára á keppnisárinu. Sú breyting er frá því síðast að allir knapar keppa í hverri keppnisgrein en einungis árangur þriggja efstu í hverju liði telur. Meistaradeild Líflands og æskunnar er í senn bæði liða- og einstaklingskeppni. Það lið sem safnar flestum stigum í deildinni stendur uppi sem sigurvegari og það sama er með knapa, sá knapi sem hlýtur flest stig vinnur Meistaradeild Líflands og æskunnar. Keppnisgreinarnar eru fjórgangur, fimmgangur, tölt, slaktaumatölt, fimi og flugskeið í gegnum höllina. Fimi er ný keppnisgrein í deildinni og verður gaman að sjá knapana ungu leika listir sínar á gólfinu.

18. febrúar kl. 14:00 – fjórgangur
4. mars kl. 14:00 – tölt
18. mars kl. 14:00 – fimmgangur
8. apríl kl. 14:00 – slaktaumatölt
18. apríl kl. 17:00 – fimi, flugskeið og lokahóf

Meistaradeild Líflands og æskunnar verður haldin í TM-reiðhöllinni í Fáki og er ókeypis aðgangur. Við hvetjum alla til að mæta og styðja við bakið á ungu knöpunum okkar.

 

 


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana