Innköllun á einni áburðartegund frá Líflandi ehf.

Innköllun á einni áburðartegund frá Líflandi ehf.

Lífland hefur, í samvinnu við Matvælastofnun, innkallað áburðartegundina LÍF 21-6-9,5+Se, vegna of hás kadmíumsinnihalds. Samkvæmt niðurstöðum efnagreininga Matvælastofnunar reyndist kadmíuminnihaldið vera 71 mg/kg fosfórs en kadmíum má mest vera 50 mg/kg forsfórs. Lífland sendi innsiglað hlutsýni á óháða rannsóknarstofu og niðurstöður úr þeim rannsóknum eru væntanlegar fljótlega.

Ef niðurstöður Matvælastofnunar reynast réttar eru það mikil vonbrigði fyrir Lífland þar sem allt kapp var lagt á að afhenda eins örugga vöru og kostur er. Kadmíum í áburði kemur úr svokölluðu DAP (díammóníumfosfat) en áburðarframleiðandinn var búinn að flytja inn vottað DAP með lágu kadmíuminnihaldi, sérstaklega fyrir áburð sem sendur var til Líflands.

Kadmíum er málmur sem getur safnast upp í vistkerfum með endurtekinni notkun á kadmíumríkum áburði. Engin samræmd efri mörk á kadmíum í áburði eru innan EB. Sem dæmi eru Ísland og Finnland með efri mörk á kadmíum 50 mg/kg fosfórs, Noregur og Svíþjóð eru með 100 mg/kg fosfórs en engin efri mörk eru í Bretlandi, Hollandi og Belgíu. Þetta gerir áburðarframleiðendum erfitt fyrir að uppfylla mismunandi mörk á milli landa.

Búið er að hafa samband við alla viðskiptavini sem fengu umrædda áburðartegund og skipta henni út fyrir aðra, ef hægt var.

Viðeigandi aðilar eru beðnir velvirðingar á óþæginum sem kunna að verða af þessu.

Nánari upplýsingar veitir Jóhannes Baldvin Jónsson hjá Líflandi (johannes@lifland.is)


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana