Hestafóður

Pink Mash rauðrófukögglar 15 kg
Pink Mash rauðrófukögglar 15 kg

Pink Mash rauðrófukögglar 15 kg

Vörunúmer 85600

Pink Mash er lystugt blautfóður sem leggur til hátt hlutfall meltanlegs gæðatrénis sem ásamt rauðrófum og hörfræi skapa blöndu sem styður við heilbrigði hestsins. 

Verðmeð VSK
9.990 kr.
Verðán VSK 8.056 kr.

Pink Mash rauðrófukögglarnir eru sérsniðnir til að bæta meltingu og draga úr magavandamálum hrossa. Pink Mash inniheldur góðgerla og góðgerlabætandi efni sem styðja við framgang góðgerla í meltingarvegi hestsins og draga úr áhrifum skaðlegra örvera. Bætt þarmaflóra eykur gerjun trénis í fóðri hestsins og eykur þar með fóðurnýtingu. Einn poki af Pink Mash endist að meðtaltali í um mánuð miðað við daglega notkun. 

Helstu eiginleikar: 

  • Pink Mash rauðrófukögglar eru viðbótarfóður sem er hentugt fyrir alla hesta, hvort sem þeir eru í lítilli eða mikilli brúkun
  • Það hentar einkar vel fyrir hross með magavandmál, s.s. bólgur og magasár og kemur að gagni fyrir hross sem halda illa holdum. 
  • Hentar vel fyrir hross með hófsperru eða heltivandamál.

Lykilþættir:

  • Dregur úr ónotum í maga og getur haft jákvæð áhrif á örveruflóru í smáþörmum.
  • Inniheldur rauðrófur sem innihalda andoxandi efnasambönd sem draga úr efnaskiptaálagi og styðja við orkubúskap og úthald vöðva við áreynslu.  
  • Mjög lystugt og trénisríkt fóður. 
  • Mjög lágt í sykur- og sterkjuinnihaldi.
  • Inniheldur Protexin, góðgerla (Saccharomyces cerevisiae ) sem hafa jákvæð áhrif á örveruflóru meltingarvegar.
  • Inniheldur góðgerlaörvandi efni (Prebiotic) sem draga úr áhrifum skaðlegra örvera í meltingarvegi.
  • Tekur 5-10 mínútur að bleyta upp. 
  • Getur komið í stað hluta af heygjöf/gróffóðri og hjálpað til við að bæta vatnsbúskap hestsins.
  • Styður við heilbrigða starfsemi þarma.
  • Heppilegt fyrir hesta sem glíma við helti og hófsperru.
  • Inniheldur hörfræ sem eru rík af Omega 3 fitusýrum. 

Ráðlagður dagsskammtur:

  • Til viðhalds:                                                  100g/100 kg lífþunga.
  • Í keppnisþjálfun/uppbyggingu:                  200g/100 kg lífþunga.
  • Í stað hluta gróffóðurs:                              500g/100 kg lífþunga.  

Notkun: Pink Mash skal bleyta upp fyrir notkun. Blandið við 2-3 hluta vatns og látið liggja í 10 mínútur fyrir gjöf. Notist innan 2ja tíma frá blöndun. Tryggið gott aðgengi að hreinu drykkjarvatni öllum stundum. 

Greiningarþættir: Orka 9 Mj/kg, hráprótein 12,0%, hráfita 3,5%, hrátréni 40,0%, hráaska 5,0%, sykur <2,0%, sterkja <2,0%.

Innihald: Sojahýði, þurrkaðar rauðrófur, fínmalað hörfræ.

Aukefni: Prótexin góðgerlar  (Saccharomyces cerevisiae (NCYC Sc45) 4b1702 1x10(10)CFU/kg)

Nettóþyngd: 15 kg

Geymist á hreinum, þurrum, köldum og dimmum stað.

Tengdar vörur

Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstubraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5| 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Skrifstofa  |  Brúarvogi 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is