ABOUT US
E-MAIL
CONTACT US
VIEW CART
ORDER
Currency Amount
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
Online Store
 
Fim 13.ágú 2009
TILKYNNING FRÁ LÍFLANDI

TILKYNNING FRÁ LÍFLANDI
 
Í byrjun maímánaðar sl. hafði orðið það óhagstæð þróun á gengi íslensku krónunnar að óhjákvæmilegt var þá að hækka verð á kjarnfóðri.  Hækkuninni var haldið í algeru lágmarki í þeirri von að gengisþróun yrði hagstæðari fyrripart sumars.  Því miður gekk það ekki eftir og sem dæmi má taka að gengi íslensku krónnunnar gagnvart Evru  hefur veikst um rúm 6% frá því í maí.
Á síðustu vikum hafa sumar hrávörur lækkað á erlendum mörkuðum, en einnig hafa orðið nokkrar verðhækkanir á mikilvægum hráefnum eins og sojamjöli og sojaolíu. 
Þegar öll þessi atriði eru skoðuð verður ekki komist hjá því að verðbreytingar verði á kjarnfóðri. Verðhækkun verður því á kjarnfóðri frá Líflandi frá og með næstkomandi mánudagi 17. ágúst. Verðhækkunin nemur allt að 4% misjafnt eftir tegundum.
 
Allar nánari upplýsingar veitir Bergþóra Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri, s. 540-1100.
Síðasta frétt 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 59 60 Næsta frétt 
Lífland hf verslun Reykjavík · Lynghálsi 3 110 Reykjavík · sími: 540 1125
verslun Akureyri · Lónsbakka 601 Akureyri · sími: 540 1150
skrifstofa · Korngörðum 5 104 Reykjavík · sími: 540 1100
Vefhonnun: Design Europa