FYRIRTÆKIÐ
TENGT EFNI
NETFÖNG STARFSFÓLKS
FYRIRSPURNIR
OPNUNARTÍMAR
KARFAN MÍN
PANTA
Vöruleit
Nafn vöru Vörunúmer
Online Store
FRÉTTIR
Fim 19.ágú 2010
Sveitasæla í Skagafirði
Mán 09.ágú 2010
TILKYNNING Miklar hækkanir á hrávörumörkuðum erlendis.
Mán 10.maí 2010
TILKYNNING FRÁ LÍFLANDI UM VERÐBREYTINGU Á FÓÐRI
Fös 09.apr 2010
TILKYNNING FRÁ LÍFLANDI UM VERÐBREYTINGU
Fös 19.feb 2010
Samstarf Landsmóts og Líflands innsiglað
 
Mið 15.júl 2009
Ný fóðurverksmiðja Líflands rís á Grundartanga

 
 
 
Ný fóðurverksmiðja Líflands rís á Grundartanga
 
Í dag var tekin fyrsta skóflustunga að nýrri fóðurverksmiðju Líflands á Grundartanga. Nýja verksmiðjan markar tímamót í fóðuriðnaði hér á landi. Þær fóðurverksmiðjur sem hafa þjónað Íslendingum fram að þessu eru komnar til ára sinna og því metnaðarmál að svara kröfum nýrra tíma um aukna nákvæmni, gæði og öflugri sóttvarnir. Ljóst er að ný tækni gjörbyltir allri aðstöðu til fóðurframleiðsu og er grunnur því að Lífland geti af öryggi þjónað íslenskum landbúnaði í framtíðinni.
 
Miðast við heilbrigðiskröfur ESB
Með nýrri tækni stóreykst öll nákvæmni við íblöndum vítamína, stein- og snefilefna sem eykur öryggi í framleiðslu og þar með gæði vörunnar. Orkunýting við framleiðsluna verður betri auk betri nýtingar og vinnslu  á öllum hráefnum.  Mesta breytingin er þó fullkominn aðskilnaður á hráefnum og hitameðhöndluðu fóðri sem stórbætir sóttvarnir gegn sjúkdómsvaldandi örverum.
Nýja verksmiðjan gerir Íslendingum kleift að framleiða kjarnfóður með svipuðum tæknibúnaði og best gerist í Evrópu. Tækjakostur verður af fullkomnustu gerð og miðast við heilbrigðiskröfur ESB. Framleiðslugeta verksmiðjunnar verður 30 þús tonn á einni vakt.
 
 
Aukið öryggi á viðsjárverðum tímum
Nýja verksmiðjan bætir úr brýnni þörf fyrir geymslurými undir hráefni, hvort heldur er til fóðurgerðar eða manneldis. Það kom berlega í ljós í haust í efnahagshruninu að áhættusamt er að hafa einungis birgðir til 2-3 vikna í landinu að meðaltali ef eitthvað kemur upp á svo sem styrjaldir eða farsóttir og ferðir til landsins stöðvast. Geymslugeta í dag er rúmlega 13 þús tonn en við hana bætast um 8.000 tonn með nýrri verksmiðju.
 
Rís á hálfu ári
Reist verður verksmiðjuhús sem samanlagt spannar yfir 1.200 fermetra. Unnið verður hratt að uppsetningu og fyrirhugað er að nýja verksmiðjan hefji framleiðslu á vormánuðuðm 2010.
Gerður hefur verið samningur við verktaka úr Hvalfjarðarsveit um jarðvinnu og samið um  byggingu sökkla og botnplötu við aðra íslenska verktaka. Gert er ráð fyrir að að meðaltali verði á annan tug íslenskra iðnaðarmanna að vinna á svæðinu þá mánuði sem á framangreindum framkvæmdum stendur.
 
Nánari upplýsingar veitir Bergþóra Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri Líflands, í síma 861 3181
 
 
 
 
 
 
 
 
Síðasta frétt 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 59 60 Næsta frétt 
Lífland hf verslun Reykjavík · Lynghálsi 3 110 Reykjavík · sími: 540 1125
verslun Akureyri · Lónsbakka 601 Akureyri · sími: 540 1150
skrifstofa · Korngörðum 5 104 Reykjavík · sími: 540 1100
Vefhonnun: Design Europa