Ódýrara fóður fyrir íslenska mjólkurframleiðendur!
Á undanförnum mánuðum hefur Lífland verið í samstarfi við ýmsa evrópska
fóðurframleiðendur og sérfræðinga í fóðrun nautgripa með það að markmiði að
þróa ódýrari valkosti í kjarnfóðri en hér hafa áður verið í boði.
Þessi vinna hefur grundvallast á upplýsingum úr
heysýnum síðasta sumars, þannig að samsetning fóðursins hæfi því gróffóðri sem
stendur til boða á flestum íslenskum búum. Í blöndunum er ekki fiskimjöl enda er það forsenda lægri verða.
Fiskimjöl hefur hækkað afar mikið að undanförnu og er ein af orsökum þess að
kjarnfóðurverð hefur hækkað undanfarið.
Árangur af þróunarstarfi Líflands birtist í
tveimur nýjum tegundum af fóðurblöndum.
Verðið er milli 10 og 20% lægra en verið hefur á algengustu blöndum
kúafóðurs hjá Líflandi.
Það er skoðun forsvarsmanna Líflands að íslenskir
bændur þurfi að eiga sem fjölbreyttast val á kjarnfóðri þannig að hvert bú geti
valið það sem best hentar með heimafengnu
fóðri og þannig hámarkað framleiðni á
hverjum tíma.
Á þann hátt vill Lífland leggja sitt af mörkum til til þess að auðvelda
bændum að auka samkeppnishæfni og mæta kröfum markaðarins um hagkvæma verð á
innlendum búvörum.
Vegna örra
hækkana á hráefnum til fóðurgerðar auk hækkunar á aðflutningsgjöldum þá sér
Lífland sér ekki fært annað en að hækka verð á kjarnfóðri um 4% . Hækkunin tekur
gildi frá og með 1. febrúar næstkomandi.
Nú eru gæludýradagar í verslun Líflands, Lynghálsi 3!
Allir þeir sem versla gæludýrafóður eða vörur geta komist í pott sem dregið verður úr á útvarpsstöðinni XFM laugardaginn 9. september! Glæsilegir vinningar í boði!
Líttu við og gerðu góð kaup, þú gætir átt von á vinningi!
Lífland hefur ákveðið að lækka verð á kjarnfóðri um 1,5% og tekur sú ákvörðun gildi frá og með 5. september 2006. Gengislækkanir eru helsta ástæða lækkunarinnar. Aksturstaxtar hækka um 4% frá sama tíma og er ástæðan hækkanir á almennum rekstrarkostnaði fóðurbíla.
Í byrjendaflokki sigraði Silja Hrund Júlíusdóttir örugglega á Hregg frá Hátúni, en í flokknum minna vanar var það Guðrún H.Valdimarsdóttir sem sigraði á Rauðanúp frá Sauðárkróki. Báðar leidddu þær eftir forkeppni og héltu fyrsta sætinu í úrslitum.
Í flokknum meira vanar var það spútnik keppandinn Hrönn Ásmundsdóttir úr Mána sem kom mest á óvart, en hún varð 7. eftir forkeppni, sigraði svo B-úrslitin og vann svo A-úrslitin með yfirburðum á hryssunni Djásn frá Hlemmiskeiði. Sannarlegar góður árangur það.
Í opna flokknum voru vanar keppniskonur á ferð og mikið af góðum sýningum, en með sigur af hólmi fóru hið stórglæsilega par Bylgja Gauksdóttir og Hnota frá Garðabæ sem margir þekkja. Dómarar mótsins völdu svo Glæsilegasta par mótsins úr hópi keppenda og fyrir valinu urðu þau Þórdís Anna Gylfadóttir og Fákur frá Feti, en við valið var litið til útgeislunar knapa og hests, snyrtimennsku, klæðnaðar og heildarsvips pars. Þórdís Anna fór því ekki tómhent heim því hún hlaut í verðlaun glæsilega prinsessuferð frá Landi og hestum.