Vegna mikilla verðhækkana á hráefnum til fóðurgerðar tilkynnir Lífland 8% hækkun á kúafóðri og 13% hækkun á öðru fóðri frá og með 1.október.
Eins og ýtarlega hefur komið fram í fréttum hefur heimsmarkaðsverð á hveiti hækkað um 84 % á síðustu mánuðum og er ekki séð fyrir endan á þeirri hækkun.
Verð á byggi hefur fylgt hveitiverðinu og soja hækkað umtalsvert.
Skýring á mismun á hækkunum á kúafóðri og kjúklingafóðri er sá að verð á fiskimjöli hefur lækkað eftir miklar hækkanir síðastliðið ár.
Í ljósi mikilla verðhækkana á hráefnum til fóðurgerðar undanfarið er ljóst að Lífland mun ekki komast hjá verðhækkun á fóðri um næstu mánaðamót. Eins og fram hefur komið í fréttum er verulegur uppskerubrestur sérstaklega á hveiti og byggi. Soja hefur einnig hækkað í kjölfar aukinnar eftirspurnar og auk þess sem óvissa ríkir um framboð. Verðbreyting verður breytileg eftir tegundum og mun taka mið af innihaldi áður nefndra hráefna í uppskriftum.
Gert er ráð fyrir að hækkunin taki gildi frá og með næstu mánaðamótum. Betur verður upplýst í lok vikunnar hversu mikil hækkunin verður.
Lífland hefur
samið um kaup á Ístölti.
Samningar hafa tekist á milli Líflands og Birgis Skaptasonar um kaup Líflands á rekstri IT búðarinnar ehf., sem rekið hefur hestavöruverslunina Ístölt í Kópavogi.
Lífland tekur
yfir reksturinn frá og með 1. ágúst og mun verslunin Ístölt loka frá og með
þeim degi. Vörumerki og umboð Ístölts munu verða sett upp í verslunum Líflands
á Lynghálsi í Reykjavík og Lónsbakka á Akureyri á næstunni.
Gjafabréf sem útgefin eru af Ístölti verður hægt að innleysa
hjá Líflandi að fullu og eins mun Lífland veita aðra þá þjónustu sem veita þarf
og eðlileg er, vegna vörumerki sem Ístölt hefur verið að selja.
Sökum hækkunar á hráefnum til fóðurgerðar auk
hækkunar á flutningum til landsins sér Lífland sig knúið til þess að hækka verð
á fóðri frá og með 1. september.
Hækkunin nemur 5% .
Meginorsök hækkunar á hráefnum til fóðurgerðar má
rekja til uppskerubrests í Evrópu á hráefnum. Auk þess hefur notkun á hveiti og
byggi til framleiðslu á Biodisel snaraukist. Eins og staðan er nú sér ekki
fyrir endann á hækkunum á hráefnum enda er Evrópa nú orðin innflytjandi á
kornvörum en var áður útflytjandi.
Lífland opnaði með pompi og prakt nýja verslun að Lónsbakka á Akureyri
(gegnt Húsasmiðjunni) þann 4. júlí. Viljum við þakka akureyringum og
nærsveitarmönnum hlýjar móttökur. Við munum kappkosta við að veita
viðskiptavinum okkar lipra og góða þjónustu.
Í tilefni þessa
eru glæsileg opnunartilboð í báðum verslunum og happdrætti með
margvíslegum vinningum m.a. bíómiðar á sumarsmell ársins, "Evan
ALMIGHTY".
Lítið við, skoðið úrvalið og nýtið ykkur glæsileg tilboð!
Verslun Líflands stóð fyrir sjálfshjálparnámskeiði í járningum í gær í samvinnu við Félag Járningamanna. Markmið námskeiðsins var að kenna áhugasömum undirstöðuatriði járninga með það að markmiði að menn geti bjargað sér ef skeifa dettur undan í ferðalögum sumarsins. Kennari á námskeiðinu var Hrólfur Bragason, járningameistari. Eins og sjá má skín áhuginn af hverju andliti.
Viltu læra að bjarga þér ef skeifan dettur undan í ferðalaginu? Komdu þá á sjálfshjálparnámskeið í járningum í verslun okkar að Lynghálsi 3
fimmtudaginn 21. júní kl. 16:00!
Lífland vill óska öllum keppendum til hamingju með frábæra framistöðu á mótinu nú um helgina. Hér fyrir neðan er listi yfir verðlaunahafa í öllum flokkum.