Hundadagurinn tókst afar vel síðasta laugardag í báðum verslunum okkar. Margir lögðu leið sína í verslanir okkar til að fá jólanaglaklippinguna fyrir hundinn hjá hundasnyrtunum Margréti frá Hundasnyrtistofunni ehf. og Guðrúnu frá Snyrtistofunni Hundadekri. Gunnar frá Smalahundafélagi Íslands var hjá okkur allan daginn í Lynghálsinum og leiðbeindi fólki um þjálfun vinnuhunda og sýndi myndbönd af Smalahundakeppnum í Evrópu. Þórarinn Ingi gerði slíkt hið sama fyrir hönd Smalahundafélagsins fyrir norðan í verslun okkar að Lónsbakka.
Hér sjáum við Margréti frá Hundasnyrtistofunni ehf. klippa klærnar á afar fallegri blöndu af íslenskum fjárhundi og langhundi.


(mynd fyrir ofan) Hér er Gunnar frá Smalahundafélagi Íslands að sýna hundana sem hann kom með sér.
(mynd fyrir neðan) Eigandi fallega mórauða hvolpsins sem var þar einnig til sýnis er að kíkja á hann og athuga hvort hann sé nokkuð einmanna þarna inni.
Mikið var um að vera í versluninni þegar mest á gekk.
Hér sjáum við Guðrúnu frá Hundadekri snyrta klærnar á Chihuahua tík.
Hér fyrir neðan eru myndir að norðan, mikið fjör var í versluninni eins og við var að búast með alla þessa hunda á svæðinu.
Fyrir norðan að Lónsbakka var biðröð að hundasnyrtinum Lilju frá Hunda- og kattasnyrtistofu Lilju.