ABOUT US
E-MAIL
CONTACT US
VIEW CART
ORDER
Currency Amount
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
Online Store
 
Þri 30.sep 2008
Gæludýra dagar í Líflandi!!

Helgina 3-4 oktober eru gæludýradagar í Líflandi, og ekki af verri endanum..

Helgin byrjar á föstudeginum á þvi að búðin á Lynghálsi  fyllist af kisum kl 16:00 en þá mun Frostrósar ræktun koma og kynna Norska skógarköttin og þar á meðal munu vera kettlingar.

 

Ekki er laugardagurinn af verri endanum, þá munu mæta hundasnyrtar bæði á Lyngháls og Lónsbakka. En þeir munu bjóða uppá klóa klippingu og gefa góð ráð um feldhirðu.

 

Nú þegar er byrjuð útsala af gæludýravörum, ekki missa af þessari frábæru helgi í Líflandi.

 

Ef þið viljið forvtinast meira um norska skógarköttin farið þá inn vefsíðu þeirra en slóðin er..

 

www.skogarkettir.is

 


meira »
Fös 16.maí 2008
Karlakvölld Líflands Lónsbakk


Karlakvöld Líflands 14. mai 2008


Karlakvöld Líflands var haldið miðvikudaginn 14.maí í verslunni að Lónsbakka Akureyri. Góður rómur var gerður að uppákomunni meðal hestamanna á Akureyri og fjölmenntu þeir á staðinn. Sigurbjörn Bárðarson hélt fyrirlestur um reiðhallir og notkunarmöguleika þeirra. Fyrirlesturinn mæltist vel fyrir og urðu fjörlegar umræður meðal hestamanna um ýmsum þáttum velt upp. Starfsmenn
Líflands á Akureyri, Ellert og Einar, buðu upp á snilldargóðar snittur frá Bautanum og þær runnu ljúflega niður með norðlensku öli og snöffsum.






meira »
Mán 21.apr 2008
úrslit Líflandsmót
Pollar tölt
Pollar tölt

Unglingar tölt

Ungmenni tölt

Börn tölt

Ungmenni fimmgangur

Ungmenni tölt







meira »
Þri 15.apr 2008
Úrslit Kvennatölt Gusts!


meira »
Mán 07.apr 2008
Tilkynning - Hækkun á kjarnfóðri!
Í ljósi veikingar krónunnar og hækkunar á verði hráefna til fóðurgerðar, tilkynnir Lífland 10-21% hækkun á kjarnfóðri frá og með 7. apríl 2008.
meira »
Fös 04.apr 2008
Skráning á kvennatölt Gusts!
Okkur þykir leitt að tilkynna að vegna tæknilegra örðuleika hefst skráning á Kvennatölt Gusts ekki fyrr en seint í kvöld eða snemma í fyrramálið.
meira »
Mán 31.mar 2008
Tilkynning frá Líflandi!

Vegna áframhaldandi hækkana á verði hráefna erlendis auk mikillar veikingar íslensku krónunnar, er fyrirsjáanleg hækkun á verði kjarnfóðurs á næstunni.

Nánari upplýsingar verða birtar á næstu dögum.


meira »
Mið 26.mar 2008
Undirbúningur fyrir Landsmót hestamanna nú á fullu skriði!

Undirbúningur Landsmóts hestamanna er nú á fullu skriði og að sögn Regínu S. Gunnarsdóttur sem starfar við sölu og markaðsmál Landsmóts er áhugi verslunarfólks gríðarlegur með að koma vörum og þjónustu á framfæri á meðan mótinu stendur.  Verslunaraðilum gefst kostur á útisvæðum og aðstöðu í markaðstjaldi eins og verið hefur en einnig verður glæsileg aðstaða fyrir sölubása í reiðhöllinni sem nú er í byggingu og miðar vel áfram.  Hægt er að kynna sér sölu- og markaðsmál nánar á heimasíðu Landsmóts www.landsmot.is.

Meðfylgjandi mynd var tekin á dögunum þegar innsiglaður var samstarfssamningur Líflands og Landsmóts hestamanna.  Lífland hefur um árabil verið einn af aðal bakhjörlum Landssambands hestamanna og í ár mun fyrirtækið jafnframt hafa veglega aðkomu að Landsmóti.

Eins og flestum er kunnugt stendur Landsmótið yfir dagana 30. Júní – 6. júlí.  Forsala aðgöngumiða er þegar hafin á netinu og eru viku- og helgarmiðar 15% ódýrari til 1. maí nk.  Sú nýbreytni hefur jafnframt verið tekin upp á LM 2008 að auk miðasölu á netinu geta gestir keypt stúkur og hjólhýsastæði sem og pantað sín eigin stúku- og hjólhýsastæði gegn framvísun miðakvittunar.  Allar nánari upplýsingar um tilhögun er að finna á heimasíðu Landsmóts:  www.landsmot.is

meira »
Fim 13.mar 2008
Hnakkakynningar í Líflandi! Breyting!
Eftirfarandi aðilar verða í verslun okkar að Lynghálsi 3 með hnakkakynningar og fleira á næstu dögum:

Sigurbjörn Bárðarson verður hjá okkur á laugardaginn, 15. mars, frá kl. 12 - 15.00 með ráðleggingar um val á reiðtygjum.

Árni Björn Pálsson þriðjudaginn 18. mars frá kl. 14 - 17.00. Hann verður með ráðleggingar um val á búnaði og hnökkum.

Benedikt Líndal þriðjudaginn 18. mars frá kl. 14.00. Hann kemur til með að kynna hnakkana sína.

Sérfræðingur úr smiðju Hrímnis miðvikudaginn 19. mars frá kl. 16 - 18.00. Hann kemur til með að kynna hnakkana Hrímnir og Týr.
meira »
Fös 22.feb 2008
Kvennakvöld Líflands!
Kvennakvöld Líflands var haldið í fyrsta skipti þann 21. febrúar og vakti mikla lukku! Um 40 konur mættu galvaskar og nutu góðra veitinga, tilboða ásamt tískusýningu á nýjasta fatnaði frá Sonnenreiter og Mountain Horse. Hulda Geirs hélt fyrirlestur varðandi konur, heimilislíf og hestamennsku og samræmingu alls þessa. Okkur virðist almenn ánægja ríkja með hvernig til tókst og hvetur það okkur til þess að brydda upp á fleiri skemmtilegum nýjungum í framtíðinni.
meira »
Fyrri frétt 1 2 3 4 5 6 Næsta frétt 
Lífland hf verslun Reykjavík · Lynghálsi 3 110 Reykjavík · sími: 540 1125
verslun Akureyri · Lónsbakka 601 Akureyri · sími: 540 1150
skrifstofa · Korngörðum 5 104 Reykjavík · sími: 540 1100
Vefhonnun: Design Europa