ABOUT US
E-MAIL
CONTACT US
VIEW CART
ORDER
Currency Amount
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
Online Store
 
Mán 06.júl 2009
Verðþróun á hrávörum til fóðurgerðar – 6. júlí 2009

meira »
Þri 09.jún 2009
Verðþróunn á hrávöru til fóðurgerðar
 
Almennt má segja um verðþróun á hrávöru að hún hefur verið talsvert óhagstæð í maímánuði og það sem af er júní.  Þarna virðast nokkrir þættir hafa mest áhrif:
 
1)       Sáning í Bandaríkjunum gengur mun hægar en undanfarin ár vegna óhagstæðs veðurfars.  Vægi Bandaríkjanna í alheimsviðskiptum með hrávörur er það mikið að áhrifanna gætir á öllum hrávörumörkuðum heims.
2)      Fjárfestingasjóðir hafa á nýjan leik beint sjónum sínum og viðskiptum inn á hrávöru.  Líklegt er að það ástand muni haldast meðan verðhækkanir verða af öðrum ástæðum, eins og vegna óhagstæðra veðurskilyrða.  Ef jákvæðar fréttir munu berast, t.d. af góðum uppskeruhorfum, þá eru nokkrar líkur á því að sjóðirnir dragi talsvert úr vægi hrávöru í fjárfestingum sínum.
3)      Veðurhorfur næstu mánaða eru víða talsvert verri en í meðalári.  Víða í austur- og suðurhluta Evrópu benda spár til meiri þurrka en vanalega.  Sömu sögu er að segja af austurhluta kornbeltisins í Ameríku.
4)      Spáð er áframhaldandi aukningu í notkun á hrávörum til framleiðslu á lífrænu eldsneyti.
5)      Vaxandi kaup Kínverja á ýmsum hrávörum hefur talsverð áhrif, sérstaklega kaup þeirra á sojabaunum.
 
Nánar um einstakar hrávörur:
 
Hveiti
Horfur til næstu mánaða eru ekki góðar og spáð er áframhaldandi hækkunum fram eftir sumri.  Þær sérstöku aðstæður eru uppi að markaðurinn tekur lítið mið af framboði og eftirspurn, heldur horfir meira til veðurhorfa, framgangs hveitisáning og dregur líka dám af aukinni þátttöku verðbréfasjóða á hrávörumörkuðum.
 
Almennt virðast menn á þeirri skoðun að nægt fóðurhveiti sé til af 2008 uppskerunni, en seljendur halda að sér höndum vegna spádóma um slæma 2009 uppskeru og vonast til að fá betra verð fyrir 2008 uppskeruna ef þessar slæmu spár ganga eftir.
 
Of snemmt er að segja til um hvernig horfir með hveitiuppskeru í Evrópu í sumar.  Þó eru þegar komnar fram vísbendingar um að uppskera í mikilvægum hveitilöndum eins og Þýskalandi, Póllandi og Úkraínu geti orðið undir meðallagi þetta árið vegna þurrka.  Á sama tíma ríkir meiri bjartsýni í Bretlandi um uppskeruhorfur en fyrr í vor.
 
Greinendur á kornmarkaði eru þó þeirrar skoðunar að fréttir af slæmum veðurskilyrðum séu ýktar um of og að horfur á uppskeru í lok sumars séu betri í raunveruleikanum en spár benda til.  Þess vegna leyfa menn sér að vera bjartsýnir um verðlækkanir síðla sumars þegar líður að nýrri uppskeru.
 
Mjög svipuð verðþróun hefur átt sér stað síðustu vikur/mánuði í bökunarhveiti, bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum.
 
Maís
 
Mikil fylgni hefur verið milli verðhækkana á hveiti og maís á mörkuðum. 
 
Mikill hiti og þurrkar í Evrópu geta haft neikvæð áhrif á evrópsku maísuppskeruna.  Notkun á maís er talin munu aukast um 2% á milli ára, þrátt fyrir spár manna um minnkandi kjötframleiðslu um allan heim næsta árið.  Á sama tíma benda spár um uppskeru bæði í Evrópu og Bandaríkjunum til minni uppskeru en 2008/2009.  Horfur með verð á maís eru því ekki góðar, þótt e.t.v. sé of snemmt að draga afgerandi ályktanir í því efni.
 
Bygg
 
Bygg hefur að miklu leyti fylgt þróun hveitiverðs síðustu mánaða.  Því miður liggja mun minni upplýsingar fyrir um bygg en aðrar korngerðir, bæði vegna þess að önnur hrávara er mun mikilvægari í alheimsviðskiptunum og svo skortir einnig talsvert á að verðmyndun á byggi sé eins opin og sýnileg og er með t.d. hveiti, þar sem helstu markaðir bæði í Evrópu og Bandaríkunum skrá ekki einu sinni verð á byggi.
 
Uppskeruhorfur eru víða allgóðar, t.d. í Bretlandi.  Sama gildir samt um byggið og önnur hráefni að mögulega geta komið upp áföll á seinni stigum vaxtar, sem oft snemmt er að segja til um.  Enn sem komið er hefur lítil spurn orðið eftir byggi úr 2009/2010 uppskerunni.  Sú staðreynd gefur möguleg fyrirheit um það að verðið verði hagstætt um það leyti sem ný uppskera kemur á markað síðla sumars.  Erfiðleikar í bruggiðnaði og vaxandi birgðasöfnun vegna þess gefa líka vonir um lækkandi verð þegar líður á sumarið.
 
Sojamjöl
 
Segja má að horfur varðandi verð á sojabaunum og sojamjöli séu þær verstu á hrávörumarkaði og koma þar ýmsar ástæður til. 
 
Miklir og langvarandi þurrkar í Argentínu eiga þar stóran þátt, auk verkfalla í röðum argentínskra bænda.  Sömuleiðis hefur stóraukinn innflutningur Kínverja á sojabaunum valdið talsverðu um verðhækkanir sojamjöls síðustu vikur.   Á síðustu 9 mánuðum hafa t.d. Bandaríkjamenn flutt meira út af sojabaunum en 12 mánuði þar á undan.  Meira en helmingur þessa útflutnings hefur farið til Kína.  Birgðir í Bandaríkjunum eru því í lágmarki og hræðsla vegna þessa hefur enn frekar þrýst verði upp.
 
Afleiðing af þessu er sú að verð á sojabaunum náði í lok maí hæsta verði sem sést hefur síðastliðna 8 mánuði.
 
Einu jákvæðu fréttirnar af sojamjölsmarkaði eru þær að talið er að meira verði ræktað af sojabaunum í austurhluta Ameríku en áður var talið.
 
 
Eggert Jónasson
Innkaupastjóri Líflands

 


meira »
Fös 08.maí 2009
Kvennakvöld Líflands

meira »
Fim 30.apr 2009
Kvennakvöld á Akureyri !
Konur á Akureyri og nágrenni.
 
Ekki missa af kvennakvöldinu í verslun Líflands að Lónsbakka á Akureyri í kvöld kl 18:00.  Þórdís Erla Gunnarsdóttir reiðkennari heldur fyrirlestur um líkamsbeitingu knapa á hestbaki og í vinnu við hross. 
 
Léttar veitingar verða í boði ásamt 20% afslætti af fatnaði og vonumst við til að sem flestar sjái sér fært að mæta.

meira »
Mán 20.apr 2009
Líflandsmót 2009

 

Hið stórskemmtilega íþróttamót Líflandsmótið var haldið 19. apríl í Reiðhöll Fáks í Víðidal. Það er æskulýðsnefnd félagsins sem heldur mótið, sem er opið og hefur verið haldið á hverju ári um árabil og alltaf í samstarfi við Lífland, áður MR-búðina.

Það kom engum á óvart að krakkarnir voru vel ríðandi og áttu hverja glæsisýninguna á fætur annarri. Í mótinu tóku þátt krakkar á aldrinum 6-21 árs og allir áttu frábæran dag í Víðidalnum í dag.

Æskulýðsnefnd Fáks þakkar öllum knöpum þátttökuna og vonast til að sjá alla á sama tíma og ári
.

 

 

 

 

 

 

 

 

 


meira »
Þri 07.apr 2009
Karlakvöld í Líflandi 2. apríl 2009

Karlakvöld 2009

 
 
Fimmtudaginn 2. Apríl síðastliðinn hélt Lífland sitt árlega karlakvöld í verslun sinni að Lónsbakka á Akureyri. Karlakvöldin eru hugsuð sem fræðslu- og mannamót fyrir karlpeninginn í hestamennskunni í Eyjafirði. Að þessu sinni var umræðuefnið Skipulagning reiðvega í hesthúsahverfum. Þorgrímur Hallgrímsson reiðveganefndarmaður í Fáki hélt erindi í máli og myndum um hvernig Fákur í Reykjavík hefur staðið að málum á sínum vígstöðum, en mikil vinna hefur verið lögð í reiðvegi í Víðidalnum og nágrenni sem mælst hefur einstaklega vel fyrir hjá Félagsmönnum Fáks. Eftir erindið spunnust umræður um reiðvegi í hesthúsabyggð Léttis og reiðleiðir inn Eyjafjörð og út í Hörgárdal og sýndist sitt hverjum.  Boðið var upp á veitingar í föstu og fljótandi formi  sem gerð voru góð skil. Kvöldið þótti heppnast vel og var gerður góður rómur að þótt mæting hefði mátt vera heldur meiri.

 

 

 

 

 

 

 

 


meira »
Fim 02.apr 2009
Vorhreingerning í Líflandi.

meira »
Þri 03.mar 2009
Kvennakvöld Líflands 26 febrúar
 
Lífland bauð keppendum á Svellköldum konum til móttöku miðvikudagskvöldið 26. febrúar þar sem þær nutu léttra veitinga.  Sigurbjörn Bárðarson reynslubolti gaf þeim góð ráð um ísreið og aðbúnað hrossanna á ísnum og á keppnisstað. Keppendur fengu góð kjör á fatnaði og nýttu sér það allnokkrar ásamt því að útvega sér ýmislegt smálegt fyrir keppnisdaginn.
 
Við þökkum konunum kærlega fyrir mætinguna og sigurvegurum innilega til hamingju.
 
 
 
 

meira »
Mán 16.feb 2009
TILKYNNING FRÁ LÍFLANDI
TILKYNNING FRÁ LÍFLANDI
 
Lífland hefur ákveðið að lækka verð á kjarnfóðri um 2-4%, mismunandi eftir tegundum.
Á síðustu vikum hefur gengi íslensku krónunnar styrkst nokkuð og því hefur nú myndast svigrúm til  lækkunar kjarnfóðurs.
Lækkunin tekur gildi mánudaginn 16. febrúar.
 
Allar nánari upplýsingar veitir Bergþóra Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri, s. 540-1100.

meira »
Fim 16.okt 2008
Verðbreyting á fóðri

 

Verðbreyting á fóðri

 

Vegna gríðarlegrar veikingar íslensku krónunnar á  síðustu vikum er Líflandi sá einn kostur fær að hækka verð á kjarnfóðri. Við síðustu verðákvörðun kjarnfóðurs var gengi Evru gagnvart krónunni 123 krónur.  Það gefur því auga leið að hækkun er óhjákvæmileg.

Lífland mun um sinn aðeins taka inn í verðlagningu hluta af raunverulegri hækkunarþörf. Því mun hækkunin nema 9-15% og taka gildi föstudaginn 10. október. Vonir okkar hjá Líflandi standa til þess að gengismál muni snúast til betri vegar á næstu vikum .


meira »
Fyrri frétt 1 2 3 4 5 6 Næsta frétt 
Lífland hf verslun Reykjavík · Lynghálsi 3 110 Reykjavík · sími: 540 1125
verslun Akureyri · Lónsbakka 601 Akureyri · sími: 540 1150
skrifstofa · Korngörðum 5 104 Reykjavík · sími: 540 1100
Vefhonnun: Design Europa