Landbúnaðarsýningin Sveitasæla sem var haldin í Skagafirði laugardaginn var, 21. ágúst.
Kæru gestir
Við viljum þakka ykkur fyrir komuna á sýningarbásinn okkar á Landbúnaðarsýninguna á Sauðárkróki um helgina.
Við vonum að ykkur hafi þótt gagnlegt að sjá það sem var til sýnis í sýningarbás okkar og hlökkum til þess að eiga við ykkur farsæl viðskipti í framtíðinni.
TILKYNNING Miklar hækkanir á hrávörumörkuðum erlendis.
9. ágúst 2010
Þessa dagana og síðustu vikur hafa orðið mjög miklar hækkanir á hrávörumörkuðum erlendis.Þessar hækkanir verða einkum raktar til væntanlegs uppskerubrests á hveiti í Rússlandi, en þar horfir afar illa með uppskeru vegna mikilla þurrka og skógarelda sem þar geysa.Því miður er það svo að mjög slæmar fréttir frá stóru ræktunarlandi eins og Rússlandi hafa áhrif á verð á mörkuðum um allan heim.Hækkanir á hveitinu hafa einnig víxlverkandi áhrif og valda miklum hækkunum á öllum öðrum korntegundum.
Hækkanir sem nú sjást á kornmörkuðum eru þær mestu sem sést hafa í áratugi.Erfitt er að nefna nákvæmar tölur um hækkanir vegna mikilla sveiflna á mörkuðunum, en sem dæmi má nefna að hækkun hveitiverðs frá lokum júnímánaðar nemur 60-75%.
Ef svo heldur fram sem horfir, þá munu þessar hækkanir koma fram af fullum þunga í væntanlegum förmum.Lífland mun því að öllu óbreyttu óhjákvæmilega þurfa að hækka verð á kjarnfóðri áður en langt um líður.
Lífland hefur ákveðið að lækka verð á kjarnfóðri um allt að 4%.
Það er einkum hagstæð þróun gengis á síðustu vikum sem gerir okkur nú kleift að lækka verð.
Eins og menn þekkja, þá er aðalástæða hagstæðrar gengisþróunar hin erfiða staða ríkja í suðurhluta Evrópu, einkum Grikklands. Því miður hefur þessi erfiða staða einnig valdið miklum titringi á hráefnamörkuðum og bendir margt til þess að framundan séu talsverðar erlendar hækkanir á hráefnum til fóðurgerðar.